Ég er líka með 1 40gb maxtor hann hefur virkað fínt frá fyrsta degi, hinn er gamall 6gb quantum fireball. Ég treysti honum svo vel að ég keyri bara stýrikerfið og program files á honum. Talvan mín er Gateway gp7-450, 450mhz og er að fara að uppfæra í næsta mán. Ég ættla að fá mér amd örgjörva og nforce móðurborð:) Ég er samt að það komi einhver sprengja frá amd á næstu dögum, það væri kúl. Það er eins og að þeir séu bara að bíða á meðan intel þrumar áfram.