Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

kariemil
kariemil Notandi frá fornöld Karlmaður
628 stig
Af mér hrynja viskuperlurnar…

Rómúlastríðin (8 álit)

í Sci-Fi fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Í þættinum Balance of Terror var greint frá því þegar að Rómúlska hlutleysissvæðið var sett á laggirnar milli geims Rómúla og geim bandamanna Manna. Þetta átti að gerast á tímabilinu sem Enterprise gerist á. Hinar miklu erjur milli Manna og Rómula urðu til gerð þessa samnings, en í þeim öllum sýndu Rómúlar sig aldrei. Á þessari stundu er einmitt mikið talað um hvort að Brannon og Rick ætli að hafa Rómúlsku stríðin í Enterprise eða almennt sleppa þeim, sem greinilegt er að fólki líkar ekki....

Mig vantar einhvern með verkfræðikunnáttu... (9 álit)

í Sci-Fi fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég lenti í svolitlum vandræðum með agnmyndasendana á USS Vegfaranda. Tæknin er fengin frá Borgverjum svo að tæknin samræmist ekki orkurásum skipsins. Andefnalæðið sem myndast við orkuskeytin er of mikið, og, þar sem þetta er Defiant skip, (mikilli orku er beint í geislabyssur) þá gæti það valdið ofhleðslu. Stoðeindabygging innan kerfisins gæti einnig valdið ormagangamyndun (sbr The Motion Picture) og þess vegna hættum við ekki á útsendingar heimasíðu okkar. NEmabúnaðurinn skynjar Tholiönsk...

Af hverju er svona lítið að gerast hérna? (0 álit)

í Sci-Fi fyrir 20 árum, 10 mánuðum

Litlir gluggar og stórir (2 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hvernig lætur maður litla glugga birtast, í svona popup formi (án tólbara) eins og fyrir myndir og svoleiðis. Hvaða kóða notar maður til þess. ATH að ég er ekki að tala um viðbjóðinn popup-window, heldur svona sem þú kallar upp með link, en í öðrum glugga. (Þetta er orðin algjör langloka um ekkert, vona að þið fattið hvað ég meina.)

——————————– Mottó: Lífið er táradalur. Þú mátt aldrei hætta að synda því þá drukknar þú. Vegfarandi.</a

(SPOILER) Enterprise: The Journey to the Expanse (8 álit)

í Sci-Fi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég geri þá aðra tilraun með greinina mína. Eins og margir eru kannski búnir að komast að og margir eru vafalaust ekki búnir að komast að, þá hefst þriðja sería Enterprise núna eftir nokkra daga í USA. Nafn hennar (Fyrsta sinn sem sería hefur nafn) er The Journey to the Expanse, en aðdragandinn að þeirri ferð er sá að óþekktar geimverur gera árás á Jörðu og allt lendir í kaos. Augljóslega þá er Enterprise látið elta, og snýst, a.m.k. byrjun seríunnar um þá ferð. Svæðið sem geimverurnar eru...

Hvað í ósköpunum ætti titillinn að vera? (0 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég hef horft á Eurovision síðan ég man eftir mér og hver fjölskylda í móðurætt minni heldur til skiptis partý. Mér þótti þetta ótrúlega skemmtilegt hér áður fyrr, það að horfa á Eurovision, en hef sífellt haft minni áhuga á keppninni sjálfri, og huga(.is :) ) meira að partýinu. Uppáhaldslögin mín eru auðvitað Gleðibankinn, og svo All out of Luck og Tell me. Mér þótti Birta/Angel ömurlegt lag, og Open Your Heart er ekkert spes. Það er rosalega Eurovisonlegt samt og ég tel það eiga góða...

Hvernig var síðasti þátturinn svo? (0 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum

Vegfarandi (0 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum
GAMAN GAMAN GAMAN! Eins og þeir sem skoða USS Vegfaranda reglulega, hafa líklega ekki getað það vegna alvarlegra villna í HTML ritinu. Ég hef setið yfir þessu í langan tíma núna og loksins kemur síðan á netið aftur ALMENNILEG. Þið þurfið bara að bíða fram á föstudag :) ATH einnig að CHARMED síðan Halliwell setrið, Tungumálasetur Vegfaranda ásamt Harry Potter síðunni Skástræti koma upp á sama tíma! EF ÞIÐ VILJIÐ AÐSTOÐA, HAFIÐ ÞÁ SAMBAND Á vegfarandi@xy.is (Ég gæti virkilega þegið aðstoð,...

Hjúkk! (1 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég ætlaði að segja svolítið ljótt! Ég hélt ég yrði brjálaður. Þegar ég heyrði að það yrði sérstök fréttaútsending í nótt vegna Íraksmálsins, hélt ég að hætt yrði við Enterprise. Hvenær sem Star Trek er sýnt þá frestast hann hugsað ég. En, sem betur fer hefst útsendingin á fréttunum ekki fyrr en eftir miðnætti.

——————————————- Stærsta Star Trek síða á landinu: Smellið hér[url/]

Borg í Enterprise SPILLAR (3 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Allt sem fólk hefur verið að segja, er ekki alveg rétt. Þið munið eftir því þegar að Borg-hvelið sprakk í First Contact. Jah, brakið af því brann að mestu upp í gufuhvolfinu og mögulega eyddi Enterprise-E einhverju af því, en þeir athuguðu ekki niður á jörðina, þar sem stórir hlunkar komust niður og fundust ekki fyrr en 2152 af rannsóknarhópi, sem einn meðlimur er leikinn af konu John Billingsley (Phlox). Í brakinu eru lík, sem svo ekki reynast vera lík og byrja að samlaga fólkið, komast í...

toH tlhIngan Hol DajatlhlaH 'e' DaneH'a'? (9 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 2 mánuðum
toH tlhIngan Hol DajatlhlaH ‘e’ DaneH'a'? = Vilt þú læra klingonsku? TOKH KHHLÍngAN KHOL dtALATSHKHHLAKH (kokhljóð)E(kokhljóð) dtANEKH(kokhljóð)A(kokhljóð) Klingonska eða tlhIngan Hol var fyrst gert fyrir fyrstu Star Trek bíómyndirnar af málfræðingnum Marc Okrand. Málið var gert með svokallaða „steríótýpu” málfræði í huga; málið er gróft og óþjált en þó haft þannig að mennskir leikarar geti (kannski) borið það fram. Málið hefur enga sérstaka málfræði eins og flest mál, til dæmis breytast...

Tungumál Enterprise (8 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Áður en ég byrja; eru allir orðnir kolklikkaðir?! Enterprise er rétt að byrja, þættirnir eru að komast í gang, leikararnir enn að ná hlutverkunum, ég meina, common. Fáið ykkur fyrsta TNG þáttinn á leigu og hlægið að viðbjóðslega hallærislegum leik, tónlist sem minnir á “The Attack of the killing robots” og hvað eina. TNG byrjaði fyrstu tvær seríurnar hræðilega, belive me, ég á þær á DVD, þær hafa 8 góða þætti! En svo við snúum okkur að greininni. Ég hef verið að pæla í þessu Hoshi Sato dóti...

Tungumál (7 álit)

í Hugi fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég vill tungumálaáhugamál á-huga! Hvar getur maður annars póstað öllu dótinu sínu?

——————————————- Stærsta Star Trek síða á landinu: Smellið hér[url/]

Acqisition (2 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 2 mánuðum
…held þetta sé skrifað svona. Alla vegana, fínn þáttur, ekkert allt of frábær en alls ekkert slæmur. T'Pol, ægilega á hún auðvelt með að móðgast og kom með alls kyns ó-vúlkanskar setningar eins og “sometimes I'd wish Vulcans had not learnt how to repress there - violent tenencies”. OK hvað er það? Jæja, annars var hann góður, Ferengar eru alltaf skemmtilegir.

——————————————- Stærsta Star Trek síða á landinu: Smellið hér[url/]

Geimstöðin: Makleg málagjöld (4 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hverjum í ósköpunum dettur þessi þýðing í hug. Í fyrsta lagi þá koma engin makleg málagjöld fram í myndinni og þetta gerist ekki um borð á Deep Space Nine sem ég geri ráð fyrir að sé hugmyndin á bak við grunntitilinn.

——————————————- Stærsta Star Trek síða á landinu: Smellið hér[url/]

Hefur þú séð Nemesis? (0 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 2 mánuðum

NEMESIS (Miklir Spoilerar) (19 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég kom heim af æfingu fór að éta og svona í rólegheitunum, fór síðan inn í stofu þar sem að mamma var að horfa á That's life!. Ég reyndi að koma mér inn í þáttinn, talaði aðeins við mömmu sem fór svo allt í einu að tala um að Nexus forsýningin væri eftir þrjú korter! Ég hafði gefið mér það að þetta væri að gerast í næstu viku, svo að ég var ekki búinn að kaupamiða eða neitt. Hringdi í frænda minn snögglega til að sjá hvort hann gæti skutlað mér, líka nið'rí Nexus. Svo þurfti hann ekki að...

www.ditl.org (0 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 3 mánuðum
The Daystorm Institute of Technology er frábært og risastórt gagnasafn um allt sem viðkemur uppáhalds áhugamálinu okkar. www.ditl.org

——————————————- Stærsta Star Trek síða á landinu: Smellið hér[url/]

Er spennan ekkert að aukast???? (8 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Eins og flestir geta auðveldlega séð, þá er traffíkin hér á Star Trek áhugamálið orðin svolítið dauf, samt er komin ný sería sem einmitt þarf að diskótera; gallar, kostir, lélegir þættir, góðir þættir; það var meira að segja meiri umræða um Voyager. Svo fer Star Trek: Nemesis að koma út og mér skilst að hún eigi að vera mjög góð. Ég hef alla vegana bara séð einusinni á öllu mínu netrölti að maður kalli hana “dissapointment”. Af öllum þeim tugum Star Trek síðna sem ég skoða reglulega, voru...

POPP TÍVÍ (1 álit)

í Spenna / Drama fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þetta eru gamlir þættir, right, ég er ekki enn kominn alveg inn í þetta. + Af hverju fóru þeir að gera sér seríu með Angel, og kemur hann eitthvað aftur í Buffy?

——————————————- Stærsta Star Trek síða á landinu: Smellið hér[url/]

Fannst þér nýja myndin góð? (0 álit)

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum

Harry Potter and the Prisoner from Azkaban (7 álit)

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Margt á eftir að breytast við gerð Prisoner from Azkaban og er það möguleg ástæða fyrir eftirfarandi: Samkvæmt því sem ég hef heyrt kemur 3. myndin ekki fyrr en í janúar 2004, þó að áður hafi verið sagt að það yrði ekki nema ár milli mynda. Nýr leikstjóri verður og því má búast við breytingum á útliti að einhverju leyti, ásamt öðrum hlutum. Hann heitir Alfonso Cuaron, og er þekktastur fyrir myndina “Og mamma þín líka” eða “Y Tu Mama Tambien”. Það er ekki víst hvort að leikarar Harry, Ron og...

Málfræðiáhugamál (9 álit)

í Hugi fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég mæli með að það verði komið upp málfræðiáhugamáli hér, þar sem hægt væri að ræða tungumál yfirleitt, pósta tilbúnum tungumálum eftir mann sjálfan og aðra og ýmislegt annað. Þetta er orðið stórt áhugamál úti í heimi, sérstaklega eftir tilkomu Lord of the Rings bíómyndanna.

——————————————- Stærsta Star Trek síða á landinu: Smellið hér[url/]

SES ONE - TWO - TRE TNG DVD (5 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Mjög ánægður, keypti mér fyrstu tvær í Nexus, hef horft á hvern þátt svona milljón sinnum, fékk þriðju seríu í jólagjöf frá mömmu og pabba, búinn að horfa á alla þættina á 4 dögum (ég veit, aðeins of hratt), en gallinn er að hann endar á The Best of Both World Part 1. Ég get ekki beðið eftir að fá 4. seríu til að fá að vita hvernig fer.

——————————————- Stærsta Star Trek síða á landinu: Smellið hér[url/]

Hvað er Nemesis löng? (2 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hvað er Nemesis löng?

——————————————- Stærsta Star Trek síða á landinu: Smellið hér[url/]
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok