Eins og flestir geta auðveldlega séð, þá er traffíkin hér á Star Trek áhugamálið orðin svolítið dauf, samt er komin ný sería sem einmitt þarf að diskótera; gallar, kostir, lélegir þættir, góðir þættir; það var meira að segja meiri umræða um Voyager. Svo fer Star Trek: Nemesis að koma út og mér skilst að hún eigi að vera mjög góð. Ég hef alla vegana bara séð einusinni á öllu mínu netrölti að maður kalli hana “dissapointment”. Af öllum þeim tugum Star Trek síðna sem ég skoða reglulega, voru aðeins ein vonbrigðatöl.

En alla vegana, endilega komið með Spoilera og rúmora og allt sem ykkur dettur í hug! Tilgangslausustu síðurnar eru þær sem aldrei breytast, og þessi hefur breyst ægilega lítið síðustu vikur.

kariemil
Af mér hrynja viskuperlurnar…