Munurinn á þessu tvennu er einna helst það að í BJJ er miklu meiri áhersla lögð á gólftækni (lása, kyrkingar, fastatök, að sleppa úr fastatökum, plús varnir gegn höggum og einhver högg þegar BJJ er notað í frjálsum bardögum). Svo er sparrað talsvert meira í BJJ en yfirleitt ekki alveg fyrstu tímana (nema ef fólk vill) á meðan fólk er að læra brögðin. BJJ hefur líka verið prufureynt miklu meira í frjálsum bardögum (Freefight, Mixed Martial Arts (MMA)) og brögðum sem virka ekki vel hent út....