Hví hrífst kvennfólk svona mikið af Boxurum??????? Hvernig stendur eiginlega á því að Hnefaleikakappar njóta svona mikillar athygli hins kynsins?

Um þetta hefur verið mikið deilt í gegnum árin og margir tjáð sig um þetta mál. Skoðanir fólks stangast á varðandi þetta efni og erfitt að finna tvo einstaklinga er telja sömu ástæður liggja að baki því að Boxarar njóti meiri athygli kvennmanna en aðrir menn.

Þó er hægt að taka saman svona Helstu ástæður sem fólk gefur fyrir því að kvennfólk er hrifnara af Hnefaleikaköppum en öðrum köppum. Slíka samantekt mun ég birta hér að neðan en vil taka það fram áður en fólk les þessa samantekt að hún er ekki tæmandi og að gefnar hafa verið upp ýmsar aðrar ástæður fyrir hrifninguni.

1. Boxari er ávallt í góðu formi og fallegur.
2. Boxari á ávallt seðla í sínu veski*.(Gildir eingöngu um atvinnumenn.)
3. Gott form gefur af sér gott Klíf. Konur kunna að meta það.
4. Boxari eru sagðir öruggari með sjálfa sig en aðrir menn og það er sagt vekja öryggiskennd hjá hinu kyninu.
5. Boxarar eru agaðri og afslappaðri en aðrir menn sökum þess að þeir fá sína útrás innan hringsins.
6. “Blá” augu og blóðugir nebbar eru sagðir hafa kynferðislega örvandi áhrif á kvennmenn.
7. Hnefaleikakappar njóta stöðugrar athylgi kvennmanna. Sumir halda að konur fýla svona smá samkeppni.
8. Grobbsögur af “bláum” augum og blóðugum nebbum annara eru sagðar hafa mjög sterk áhrif á hitt kynið
9. Boxara nebbinn alræmdi er sagður sannkallað augnayndi. Fáir kvennmenn eiga að geta staðist aðdráttarafl hans.
10. Hnefaleikar eiga að auka gáfur þeirra er þá stunda. Konur fýla karlmenn sem hafa eitthvað á milli eyrnana.


Vonandi hjálpar þetta eitthvað ykkur ungu mönnunum sem að eruð nýbyrjaðir að æfa við að skilja alla auknu athyglina sem þið hafið verið að fá frá hinu kyninu.

Og þið sem að hafið ekki haft heppnina með ykkur hjá hinu kyninu núna vitið um góða leið til þess að auka möguleika ykkar.

Vona að þetta hafi gert eitthvað gagn.