Sæll, heillakallinn. Sko, þegar jeppi verður að jeppa þá er dekkjastærðin ekki nema brot af því sem átt er við. Þegar jeppa er breytt þá er verið að óska eftir því að hann sé hæfari en hann var áður í að takast á við ófærur. Ófærur geta verið margvíslegar t.d. straumvötn, sandbleyta, gljúpur sandur, hraunslóði, brattar brekkur, djúpir skurðir með brúnum hvoru megin, ár með ísskörum ásamt öllum þessum aðstæðum með snjó ofaná misþykkum, mis blautum og misþéttum. Þegar þú hannar jeppa þá er að...