jæja…. maður þorir varla að senda inn grein, það eru allir rakkaðir niður hérna… hvernig getur staðið á því að klósettpapír sé með fleiri stig en ég, ég veit ekki betur en að ég sé alltaf að senda inn eikkað búllsjhitt… skiptir samt engu máli…

en nú fynnst mér að allir á áhugamálinu eigi að senda inn stutta lýsingu á jeppa sínum, ef þeir eiga þá jeppa, en margt bendir til að svo sé ekki í fjöðrunnarbúnaðskönnunini…

minn jeppi er af gerðini Range Rover 1978 2dr. með 2,8 turbo disel daihatsu rocky vél, í augnablikinu er ég að stytta drifskaftið vegna handbremsubúnaðs (úr willys) sem kemur aftan á millikassan.
hann er á mjög slitnum 38“ mudder dekkjum ”custom" skorin;) þetta er lýsing á tryllitæki mínu…