Ég á 6 ketti, 4 læður og 2 högna. Mér finnst ekki mikill munur á kynjunum, allir sitthvorir persónuleikar. Eina sem ég hef tekið eftir er að högnarnir sækja meira í kvenfólk og læðurnar í menn, annars er það ekki algilt. Það fer eftir kettinum sjálfum hvort hann sé auðveldur eða ekki, mér finnst það ekki fara eftir kyni. Reyndar er dýrara að taka læður úr sambandi heldur en að gelda högna, en það er mesti munurinn. Vandið valið á kettinum, það er mikilvægast. Ef þið fáið kettling verið viss...