Eins og ég sagði þá bíður þeirra mikið verk, en að það sé ekkert að gera í Hveragerði fyrir þá nema Eden er nú ekki alveg rétt. Það er Hverasvæði í miðjum bænum! Golfvöllur í dalnum fyrir ofan bæinn, hestaleiga í nágreni Hveragerðis og margt fleira. Þar að auki er stutt að fara til Reykjavíkur eins og þú sagðir sjálfur og ágætt að vera í rólegu umhverfi rétt við höfuðborgina. Annars er alveg ótrúlega mikið um Túrista í bænum á sumrin. Vann við sláttur 2 sumur og maður var oft að leiðbeina þeim.