Peningar eru aðeins hlutir til að auðvelda vöruskipti. Áður en þeir komu til stundaði fólk ýmisskonar vöruskipti og reyndi þá auðvitað að fá sem mest fyrir peysuna, hestinn eða heyið. Græðgin á ekki uppsprettu sína í peningum, langt þar í frá. Varðandi Adam Smith, þá er það hin ,,ósýnilega hendi“ sem gerir kapitalismann góðan. Á samkeppnismarkaði eru allir að reyna ,,græða” sem mest. Til að verða ofan á í samkeppni þarf að bjóða vöru sem er betri og/eða ódýrari en samkeppnin. Annars snýr...