Má ég benda þér á einn hund?? það er Norfolk Terrier, hann er alveg agaleg mikil dúlla, lítill og orkumikill, á hvuttar.net stendur þetta um hann: Norfolk Terrier er einstaklega skemmtilegur lítill hundur, orkumikill, elskulegur, aðlagandi og í góðu jafnvægi. Hann er yfirleitt auðveldur í þjálfun. Þótt þeir séu litlir hafa þeir nær endalausa orku og hafa gaman af því að leika við börn. Norfolk Terrier nýtur þess að vera einn af fjölskyldunni og honum semur vel við alla fjölskyldumeðlimi, þar...