Aðlögunarhæfni kvenna er aðdáunarverð…..!

Hjón nokkur eru á mjög fínu veitingahúsi að borða þegar allt í einu birtist gullfalleg stúlka við borðið þeirra og gefur manninum svakalegan koss, beint á munninn, segist ætla að hitta hann seinna og hverfur jafn skyndilega og hún birtist.

Konan hans starir á hann og segir: \“Hver í veröldinni var þetta?\” \“Ó, þessi? Þetta var viðhaldið mitt,\” segir hann rólegur. \“Jæja já ! Þetta fyllir mælinn. Ég heimta skilnað.\” \“Ég get skilið það,\” svarar eiginmaðurinn, \“en mundu eitt, ef við skiljum þá þýðir það að þú ferð ekki fleiri verslunarferðir til Parísar, ekki fleiri vetrarferðir til Barbados, ekki fleiri sumarferðir til Toscana og það verða ekki lengur BMW og Porsche í bílskúrnum þínum. Þú missir klúbbskírteinið í skútuklúbbnum og þú þarft ekki að mæta meira í golf, en ákvörðunin er þín.\”

Einmitt þá kemur sameiginlegur vinur þeirra inn á veitingahúsið með rosa gellu uppá arminn. \“Hver er þessi kona með Svenna?\” spyr konan. \“Þetta er viðhaldið hans,\” svarar eiginmaðurinn.

Þá segir konan: \“Okkar er sætari!\”

http://frontpage.simnet.is/bjarkih/b randarar.htm