Ég hreinlega trúi því ekki að friends ætli virkilega að hætta! Ég hef aldrei verið jafn miður mín á allri minni ævi!
Friends eru langbesta afþreyging sem ég hef nokkurn tíman kynnst og þetta má bara alls ekki gerast.

Er þetta alveg öruggt? að þeir ætli virkilega að setja einhvern breskan þátt í staðinn fyrir friends? Mér finnst þetta alger hörmung og ég vildi óska þess að ég væri í algerri afneitun núna. Það mátti svo sem búast við þessu, það er búið að vera að tala um þetta svo lengi, en það hafði aldrei orðið að veruleika svo ég var hætt að trúa þessu.

NBC á eftir að tapa svo rosalega feitt á þessu að þeir geta ekki annað en platað leikarana til að halda áfram, og fyrst allir leikararnir eru til í þetta nema Jennifer Aniston, þá ættu þeir bara að leyfa henni að fara og halda áfram með þættina… hún á eftir að koma skríðandi aftur.

Hvað finnst ykkur?