Svo sammála þessu. Það er eins og það sé verið að gera í því að fría fólk undan ábyrgð gjörða sinna. Ég er svona steiktur af því að mamma knúsaði mig ekki, kennarinn setti mig í skammarkrókinn, yfirmaður minn talaði ekki við mig um daginn, sjónvarpið er svo ofbeldisfullt, allt annað en ég ber ábyrgð á því sem ég geri. Fólk tekur ákvarðanir, hvort sem þær eru réttar eða rangar þá á það að bera ábyrgð á þeim og ekki reyna áð skella skuldinni á einhvern annan!!