Ég er búinn að vera að spila Icewind Dale 2 núna í smá tíma…er alveg að fíla hann ágætlega. Er kominn í kafla 2 og kallarnir mínir eru flestir í kringum 9 lvl. Ég er í einvherjum ískastala og hitti þar einhvern galrdrakall sem heitir Nec…eitthvað (man ekki alveg nafnið). Hann bíður manni hjálp í staðinn fyrir greiða…allt got og blessað með það. Hann segist ætla að biðja um hann seinna og fer út úr herberginu. Svo þegar ég labba líka út úr herberginu ræðst hann á mig með göldrum og skepnum. Ef ég drep hann þá segir leikurinn að ég hafi drepið karakter sem er nauðsynlegur til að komast áfram í leiknum og segir að ég verði að hlaða leiknum aftur. Hefur einhver annar lent í þessu veseni?? :)