Mikið vildi ég að þið unglingarnir hélduð ykkur utan þessara þráða þar sem við foreldrarnir erum að spjalla saman. Nú hef ég ekkert á móti unglingum sem slíkum (ég á meira að segja einn :) en það er voðalega leiðinlegt að lesa hvert kommentið eftir annað; ertu á elliheimili? gengurðu í lopapeysu allan daginn? og annað mis málefnalegt. Þetta er alltaf push-pull dæmi með sjónvarpsefni, vissulega þurfa foreldrar sjálfir að stjórna eftir bestu getu hvað börnin horfa á, en mér finnst líka allt í...
Þetta er auðvitað ógeð. Ég sé þetta stundum (bý í útlöndum) og fólk þá jafnvel með lokaða gluggana eða bara smá rifu. Ég get orðið brjáluð! Svo henda allir stubbunum út um gluggann.
Mér finnst kínakjólarnir æðislegir! Hins vegar finnst mér alveg óþarfi að allir séu að reyna að vera í eins fötum eins og greinin hérna ber vott um. Þetta er ekkert svona mikið mál. Ef einhvern langar til að fermast í þjóðbúning (sem mér finnst nú persónulega ekkert endilega svo sniðugt) þá bara gerir hann það. Og allt í lagi þó næsti maður sé í flauelisdragt og sá þriðji í ‘fermingartísku’ þess árs. Mér finnst þessi fermingartíska hins vegar oft út í hött. (Hef reyndar ekki séð hvað er í...
Iss, ég las þessa bók og fannst nú ekki mikið til hennar koma. Þetta voru svona allt-í-lagi sögur en ekkert meira en það. Það þarf eitthvað mikið að breytast áður en Davíð getur kallast ‘frábær höfundur’.
Reyndar skal ég bara láta hérna linkinn á heimasíðuna hennar. Þar eru myndir af henni alveg síðan hún var smá hvolpur. http://staff.maritech.is/asgeir/family/kria.htm
Kría er blendingur að ekki sé meira sagt, mamma hennar er Boxer + American Staff og pabbinn Shaffer + Husky. Það er dálítið fyndið hvað margir hafa spurt mig hvort hún sé Rhodesian Ridgeback… svo hér hafið þið uppskriftina af Rhodesian Ridgeback :) En hún er ótrúlega vel heppnað eintak, snögghærð með fallegan feld og frábær varðhundur.
“það kemur hellingur af viti út úr mér, ég bara eyði honum ekki á hvað sem er” bwaaaahahah! Nei, guð forði þér frá því að nota vitið þegar þú ert að verja þig eða reyna að rökstyðja. Ég myndi í þínum sporum hætta að tjá mig núna á meðan þú hefur ennþá smá ‘dignity’ eftir.
Þetta er auðvitað fáránlegt og enn fáránlegra er að þetta selst! Mér er nú bara minnisstætt þegar ég hélt upp á sex ára afmæli dóttur minnar og flestar stelpurnar mættu í minipilsum og stuttum bol með magann útúr. Ég skil ekki foreldra/mæður sem finnst þetta jafnvel bara vera ‘sætt’. Ætli þeim finnist það eins sætt þegar stelpurnar eru komnar á unglingsaldur og fara að flíka brjóstunum í allt of litlum fötum…?
Takk allir :) Ég samdi þetta ljóð fyrir löngu og hef reyndar ekki gert mikið af því að semja í langan tíma. Kannski andinn komi yfir mig með öllu þessu ‘peppi’ :)
Þetta var skemmtileg grein að lesa, eitthvað sem maður lendir ekki í á hverjum degi að þurfa að pæla í. En ég er svo sammála þér, þeim mun flóknari sem hluturinn er, þeim mun meira getur klikkað. Einfaldleikinn er bestur, Japan rúlar!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..