Fiskar, I need help! Jæja þannig er það nú að mér voru gefnir fiskar í gær=) Þar sem ég veit nákvæmlega ekki neitt um fiska vantar mig hjálp:)
En allavega þetta eru svona appelsínugulir litlir fiskar, þessir venjulegu held ég bara. Þeir eru svona um 3 cm. Ég vorkenni þeim rosalega núna því það er ekkert í búrinu þeirra nema steinar á botninum.. en ég er að fara að kaupa eitthvað handa þeim á mánudaginn:) Hvað er best að kaupa, hvað finnst þeim skemmtilegast?
Svo með fæðuna, ég er með 2 fiska. Ég hef svolitlar áhyggjur að þegar ég set matinn þeirra ofan í að annar þeirra borði allt en hinn fái ekki neitt… er best að fylgjast með þeim til að vera viss um að þeir fái báðir mat?
Jæja ætla að láta þetta nægja í bili, en ein spurning samt, hvað lifa svona fiskar lengi?

Kv. Sweet;)
Játs!