Silfurgrátt hár
sindrar í geisla fölbleiks mána.
Mött augu
endurspegla rauðgulan loga vaxkertis.
Lágvært mal kattar
sameinast taktföstu tifi prjónanna
sem skylmast lykkju fyrir lykkju,
og vinalegu marri í ruggustól.
Ein.
Aðeins hún og kötturinn
og lítið pottblóm
sem teygir sig upp í lágt gluggaop
í von um ofurlitla birtu.
Annars ein.