Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Re: Hvað er til ráða
í Heimilið fyrir 23 árum
Við erum í leiguíbúð sem er búið að selja, og við erum lika að kaupa okkur aðra íbúð. Það var gerður leigusamningur til 1. júní og hann stendur. Reyndar báðum við um afhendingu 15 maí, en sú sem við leigjum af segir að við höfum hana til 1. júní eins og samningur segir, sem er ekki verra því það þarf að mála og svona ýmislegt áður en við getum flutt inní hina íbúðina. En gangi þér bara vel. kv alsig
Re: Erum að kaupa...
í Heimilið fyrir 23 árum
Takk aftur allir fyrir að svara og koma með hugmyndir. Jæja, við erum eiginlega komin á það að mála baðherbergið bara til að byrja með. Stofan verður með parketi en það verður sennilega ekki sett strax. En svo er það líka spurningin sko, það er gamalt soldið slitið parket á holinu og svefnherbergiganginum, það er opið frá holinu inní stofuna. Ætti maður að hafa eins parket á holinu og stofunni, eða…kannski flísar eða eitthvað allt öðruvísi en í stofunni? kv alsig
Re: Erum að kaupa...
í Heimilið fyrir 23 árum
Bíddu…er maður ekki öruggur með þetta viðbótarlán þegar maður er búinn að fá bréf frá sveitarfélaginu um það?? Fasteignasalinn allavega óskaði okkur til hamingju með að þetta hefði gengið…?? Takk fyrir svörin og ábendingarnar. kv alsig
Re: Nafn!!!!!!!!!!
í Hundar fyrir 23 árum
Mér finnst flott eins og Lella gerði, “labradorhundur sem heitir Garpur og labradortík sem heitir Gerpla, þau eiga 12 4ra vikna hvolpa sem ég nefndi að gamni eftir íslensku goðunum en þau heita Óðinn, Þór, Þjálfi, Loki, Baldur, Bragi, Týr, Frygg, Röskva, Iðunn, Sif og Freyja.” Sjálf átti ég hund sem hét Brútus og svo var einn yndislegur labrador sem ég þekkti og hann hét Vafi. En svo finnst manni að nafnið þurfi aðeins að passa við hundinn… gangi þér vel kv alsig
Kveðja...
Re: Ýmis atriði...?
í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hæ og takk fyrir svörin. Já popo, það er alltaf gott að fá ráð..og þó maður fái mismunandi ráð frá mörgum, þá er það ekki verra því engir tveir eru eins…ekki hundar heldur!! Kv alsig
Re: Kettlingar drepnir...
í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
já, ekki veit ég það, ég hef aldrei verið með ketti, en ætli þær finni það ekki hvort þær geti farið út í nokkrar mínútur eða ekki. Það var nú ekki opinn gluggi alveg hjá þeim, en það var gluggi þar sem hún komst út og inn. Það sem maður var að velta fyrir sér var einmitt, hvort það hefði verið annar köttur, fress eða læða sem gæti hafa drepið kettlingana eða hvað hafi eiginlega gerst. Takk fyrir svörin kv alsig
Re: Greiðslumat
í Heimilið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Jæja, nú töluðum við við þau í bankanum í annað skiptið og það á að drífa í þessu því tilboðið sem við vorum búin að gera er að renna út…svo það er þá eins gott að þeir fari að drífa í þessu!!!
Re: Hundur nr,2 á heimili...
í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Vá, gaman hjá ykkur. Hvernig hundur er þessi Giant Schnauzher? Nafnið hljómar eins og hann sé stór…? Því miður veit ég engin ráð handa þér, en vonandi getur einhver ráðlagt þér vel. kveðja alsig
Re: Uppeldi
í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Rakst á þetta inná barnaland.is, þar eru margir með svona allskonar fallegt og sniðugt á síðunum hjá börnunum sínum. kveðja alsig
Re: Ýmis atriði...?
í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, ég hugsa að við förum allavega á svona hvolpanámskeið eða svoleiðis. kv alsig
Re: Greiðslumat
í Heimilið fyrir 23 árum, 1 mánuði
ég veit, en það er nú ekki alltaf svoleiðis útá landsbyggðinni. Útibústjórinn ætlaði sjálfur að reyna að fara íþað en hann hefur haft mikið að gera. Svo ætli maður verði ekki bara að REYNA að bíða rólegur…
Re: Greiðslumat
í Heimilið fyrir 23 árum, 1 mánuði
já það er nebbla það sko…þeir geta ekki svarað neinu, manneskjan í fríi sem á að sjá um þetta og blabla. Þess vegna var ég að spá í hver “eðlilegur” tími væri fyrir svona greiðslumat…ef einhver vissi það. Takk samt
Re: Ýmis atriði...?
í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þakka þér fyrir upplýsingarnar. Við erum svo hrikalega spennt að við getum varla beðið, og við fullorðnu eiginlega spenntari en börnin c",) Takk kveðja alsig
Re: Labrador...
í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, átt þú hund og þá hvaða tegund?
Re: tegund
í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er Labrador, lítil sæt dúlla sem var gotin 13 mars held ég. Það eru allir að kafna úr spenningi hérna c",)
Re: Labrador Retriever
í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
ég er sennilega búin að finna hvolp..jibbbííííí!!
Re: ...um stráka og stelpur??
í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
já þetta er flott og passar við marga stráka… en veit einhver um svona fyrir STELPUR???
Re: Athyglis sjúkur páfagaukur
í Gæludýr fyrir 23 árum, 2 mánuðum
okkar gári tekur svona garg-frekjuköst ef hann hefur ekki fengið að fara út í einhverntíma. Það er fyndið að þessi litlu kríli geti gargað svona hátt bara til að láta vita að þeir eru sko ekki alveg sáttir við mann… :)
Re: Litla systir mín
í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
já, ég fór alltaf á sýningar og að horfa á keppni hjá dóttur minni þegar hún var í fimleikum. Það er allt í lagi að passa annað slagið já, maður var sjálfur að passa frænkur og frændur frá 10 ára aldri, en maður fékk alltaf eitthvað í staðinn, ekki endilega peninga. Gangi þér vel kv alsig
Re: SOS námskeið
í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þessi bók sem er talað um eftir Dr. Lynn Clark, SOS - Hjálp fyrir foreldra, er hægt að fá hana á bókasafni??
Re: ofvirk börn og jólin
í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
GUNNIS, OFBELDI BÆTIR EKKERT, og ég vona að þú eignist ekki börn ef það er svar þitt við vandamálum!! Ég verð nú bara að segja það að ég er að verða ein taugahrúga á þessum lestri hérna. Strákurinn minn er ekki greindur neitt, en hann hefur ýmis einkenni af þessum lýsingum af ofvirkni, athyglisbrest og hegðunar-vandamálum. Ef það kemur í ljós að hann þurfi aðstoð með lyfjagjöf þá ætla ég ekki að neita honum um það. Gangi ykkur sem best og gleðilegt nýtt ár! alsig
Re: Ofvirkni
í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Mig langar aðeins að fá að heyra frá ykkur sem eigið börn sem er búið að greina. Ég fór með son minn til heimilislæknis um daginn og hann skrifaði einhverja beiðni, talaði um að fá skólaskrifstofuna með í dæmið…??? ég er enn að bíða eftir símhringingu eða einhverju, síðan 25. nóv. Stundum er ég viss um að það hljóti að vera eitthvað að, ofvirkni eða eitthvað, en suma daga er ég ekki svo viss. Sonur minn er 5 1/2 árs, ég get svarið það að ég held að hann kunni ekki að ganga ennþá… hann ýmist...
Re: Las Ketchup æðið
í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
ég hef nú ekki orðið svo fræg að sjá þetta myndband en hef heyrt lagið nokkrum sinnum, rakst meira að segja á textann af því á netinu í gær þegar ég var eitthvað að flakka. :: Aserejé - Las Ketchup :: Mira lo que se avecina a la vuelta de la esquina viene Diego rumbeando. Con la luna en las pupilas y su traje agua marina parece de contrabando. Y donde mas no cabe un alma alli se mete a darse caña poseido por el ritmo ragatanga. Y el dj que lo conoce toca el himno de las doce para Diego la...
Re: Barnaníðingur...
í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þakka ykkur öllum fyrir svörin og álit ykkar. Ég er búin að komast að meiru í sambandi við þetta mál… Systir mín (25) hringdi í mig um daginn og bað mig að koma til sín sem snöggvast, sem ég gerði. Nokkrum sekúndum eftir að ég kom inn um dyrnar hjá henni kom þessi níðingur inn á eftir mér. Systir mín vildi ekki vera ein í sama herbergi og níðingurinn. Það kom líka í ljós að þegar hún fylgdi níðingnum til dyra reyndi níðingurinn eitthvað því ég heyrði systir mína segja “Æi, SVONA!!!” og...
Re: Skólabúningar
í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég er algjörlega sammála því að taka upp skólabúninga og þá einmitt einhverja íþróttagalla eða slíkt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok