Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: barnaskólar á selfossi?

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
það er reyndar búið að sameina skilst mér, semsagt 1 skólastjóri en samt í 2 húsum. Er að hugsa um að flytja á selfoss og er að velta skólamálunum fyrir mér. Veit ekki alveg hvað búa margir þarna, sennlega milli 5-6 þúsund manns. kv alsig

Re: Gerðu það sjálfur ?

í Heimilið fyrir 23 árum, 8 mánuðum
já, við keyptum okkur gamalt hús fyrir 3 árum og byrjuðum á því að rífa niður veggklæðningar í stofunum og þar var ekkert nema tjörupappi sem einangrun. Maðurinn minn vann þetta allt sjálfur (ólærður) einangraði og setti nýtt rafmagn (með smá aðstoð) og nú er stofan okkar hlý og góð. Veit ekki hvenær við höfum efni á að fara í restina af húsinu. Það þarf líka að klæða húsið og ýmislegt fleira sem við ætlum bara að sjá um sjálf að mestu þegar fjármagnið leyfir. gangi okkur öllum vel með það...

Re: Börn og klæðnaður

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
jahá, það er ekkert annað. Ég bý á suðurlandinu og á 10 ára gamla stelpu. Ég fór með henni í dag að verlsa föt á hana og hún er nú svo vandlát að hún gengur ekki í hverju sem er. Hún valdi sér stretch-gallabuxur, mjög útvíðar skálmar, með einhverju skrauti á öðru lærinu, og bol, bara ósköp venjulegan bol (í nærbolasniði). Stelpurnar hérna á hennar aldri klæðast mjög misjafnlega, en ég hef ekki séð neina klædda eins og þessar lýsingar hér að ofan, sem betur fer. Mér dytti aldrei í hug að...

Re: Sveitalúðinn fer í bónorðsferð, nr.19.

í Smásögur fyrir 23 árum, 9 mánuðum
þetta er alveg frábært hjá þér keep up the good work ;)

Re: Sveitalúðinn fer í bónorðsferð, nr.16.

í Smásögur fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þetta er orðið soldið spennandi… drífa sig með framhaldið. Hvenær kemur bókin út?!?!?! ;)

Re: Hvernig kærasta ertu ?

í Rómantík fyrir 23 árum, 9 mánuðum
<a href="http://www.boomspeed.com/girlfriend“ target=”_blank“><img border=”0“ src=”http://www.boomspeed.com/girlfriend/dream.bmp“ width=”202“ height=”102"></a

Re: Börn og hundar

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
En hvað um hundaeigendur sem eru að leyfa krökkum, bara einhverjum krökkum alveg niður í 6-7 ára að fara út að ganga með hunda?!?! Það er slatti af hundum hér þar sem ég bý (útá landi) og krakkar bara banka uppá þar sem þau vita að hundur býr og biðja um að fá að passa hundinn, og fólki virðist finnast það bara sjálfsagt. Reyndar eru þetta hundar í minni kantinum, en mér er sama. Maður veit aldrei hvað getur gerst. kv alsig

Re: Svo yndislegur strákur!!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
æææ…þau geta verið svo yndislega sniðug í einlægni sinni.

Re: Fósturmissir.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Sæl, ég er 28 ára gömul í dag og missti fóstur fyrir rúmum 6 árum. Ég átti þá 4 ára gamla stelpu. Ég grenjaði og grenjaði í smástund, en þegar ég var komin upp á sjúkrahús var allt gengið yfir og ég hef ekki grátið það síðan. Ég varð ólétt aftur og hann er rúmlega 5 ára í dag. En það sem ég hugsa oft um er að hann hefði átt að fæðast ári áður, því ALLIR vinir hans hérna eru ári eldri en hann. Hann á engan vin sem er jafnaldri hans, og ég held að hann þekki engann sem er á sama ári og hann....

Re: barnasandkassar og kisur

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Bvítamín, já það er ekki svo galið. Maður hefur heyrt að það virki á allskonar óværur og því þá ekki ketti. Hvernig á ég að gera það þá. Mylja töflurnar útí sandinn eða leysa þetta upp eða hvað?? takk takk alsig

Re: barnasandkassar og kisur

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Takk takk fyrir þetta allt. Ég heyrði í dag að hjartasalt ætti að fæla þá í burtu, úða í kring og yfir. Ætla að prufa öll tiltæk ráð því þetta er leiðinlegt fyrir krakkana. Sandkassinn hefur verið ónothæfur í 2 vikur vegna þess að við höfum ekkert verið að skipta um sand fyrr en við finnum eitthvað sem virkar. Takk aftur kv, alsig

Re: Reynsla af gæludýrabúðum

í Gæludýr fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Dýraland kringlunni, þar fékk vinkona mín rosa góða unga fugla, karl og kerlingu. Búin að eiga þau í 1 ár og þau eru búin að verpa 2 sinnum núna síðan í vor. Mjög gæfir fuglar. Í sambandi við verð, þá held ég að það sé svipað í öllum þessum gæludýrabúðum. Gangi þér vel

Re: Drengir eru yndislegir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég sá minn gutta (5 ára) alveg ljóslifandi fyrir mér þegar ég las þetta. Frábært!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok