Jæja, kláraði gripinn í gærkvöldi. Verð að segja að þó svo að Halo 2 sé besti leikur sem ég hef spilað lengi (þ.e. síðan Halo kom út ;-), að þá er Halo 1 nokkuð skemmtilegri, og ég held að ég eigi eftir að spila hann meira í framtíðinni. Maður verður samt að hafa í huga að það er mjög hæpið að koma með framhald af titli, sem var eins góður og Halo, sem stenst undir öllum væntingum. Það sem var verst er það hversu stuttur leikurinn er. Manni finnst eins og að leikurinn sé bara rétt hálfnaður...