Ég missti ljósið mitt þegar ég var í 14 ára, stóra systir min missti ljósið sitt þegar hún var 10 ára .
sagt er að börn sem verða fyrir nauðgun eða misnotkun eða einhvað í þann hátt missa ljósið sitt..
þegar þú missir ljósið þitt þá finst þér þú missa allan lifskraft alla von og alla framtíð. Ég man að mamma sagði alltaf við mig að aldrei fara uppi bíl með ókunnugum eða tala við ókunnuga , ekki vera lengi úti og passa mig á ókunnugu fólk og auðvita hlusta maður á mömmu sína en, hún nefndi aldrei pabba eða neinn innan ættar.

Þegar þú verður fyrir misnotkun af fólki sem er þér nákomið þá á maður það til að sækjast frekar eftir ókunnugu fólki heldur en fólk sem manni þykir vænt um , því hvernig getur einhver sem bjó þig til gert svona hluti við þig , hvaða rétt hefur hann að eyðilegga allt fyrir þér , og svo þegar þú loks þú þorir að segja frá þá neitar hann sök , maður vonar eftir einhverju mannlegu en finnur ekkert,hvernig getur einhver verið svona sjukur að svala sinni þörf á litlu stelpurnar sínar.

Maður finnur svo til að maður lætur það þannig vera oftast að skera sig til að finna sársauka í handlegginum heldur en hjartanu því hann er svo mikill .

Svo eru það sjálfsmorðin mamma kemur inn og þú situr grátandi öll löðrandi í blóði með rakvelina í annarri hendinni eða þegar bræður þínir þurfa að hjálpa þer inná klósett svo að þú getur þvegið af þér blóðið og svo hjálpa þeir þér að þrífa allt blóðið inni herbergi.
Það er sjukt að þurfa að að standa í þessu og ekkert geta gert því maður er kominn svo djupt, eða að fá að vita það að pabbi hafi verið að koma við systur mina þegar ég var sofandi við hliðana eða vita það að hann reynir að nauðga henni þangað til hún fer að gráta og loks bíður hann um að hætta, að vita að maður gat ekkert gert til að hjálpa.

Eða liggja fárveikur heima og finna einhvern vera að káfa á þér og þú getur ekkert gert því líkaminn lamast svo af hræðslu þannig það eina sem þú getur gert er að liggja kyrr og þykjast sofa, hversu sjukur ertu til að gera þetta , plús það að þú ert svo mikið lagður í einelti í skólanum á meðan þessu stendur en svo lekur þetta út og það er farið að gera grín af þessu á netinu og spurt um kynlífsþjónustu hjá pabba minum eða spurja hvernig hann hefur það eða spurja hvernig mér fanst þetta .

Svo þurfa að hitta aftur viðbjoðinn sem gerði þér þetta í jarðaförinni hjá bróðir sinum og svo í skólanum halda allir a maður sé bara að ljúga að bróðir mans sé dáinn og þetta sé bara til þess að fá vorkun. Og ég svo innilega vona að þetta komi aldrei fyrir ykkar börn