Hvað yrði gert ef að hópur manna myndi brjótast inn í banka og stela 6,5 milljörðum króna ? Yrði ekki sett þá alla í fangelsi ? Ég efast ekki um það.

En þegar þeir eru valdamiklir og ríkir, og gera það með annari aðferð. Þá er sektað FYRIRTÆKIN þeirra um aðeins 1/3 af því sem þeir stálu frá þjóðinni!

Ég vil að þeir sem að áttu mestan þátt í þessu samráði (t.d. forstjórarnir) verði dæmdir í nokkra ára fangelsi og fái aldrei aftur að stjórna fyrirtækjum! Ég bara skil ekki hvernig það er hægt að leyfa þessum mönnum að komast upp með þetta svona auðveldlega!


Mbl.is:

Samkeppnisráð hefur ákveðið að beita fjögur olíufélög stjórnvaldssektum vegna ólögmæts verðsamráðs sem stóð yfir í að minnsta kosti tæp 9 ár. Fram kemur á heimasíðu Samkeppnisstofnunar, að Skeljungur er sektaður um 1100 milljónir króna, Olís um 880 milljónir króna og Olíufélagið um 605 milljónir og einnig er Bensínorkan sektuð um 40 milljónir króna.

Fram kemur í tilkynningunni, að samkeppnisráð ákvað að beita stóru olíufélögin þrjú viðurlögum sem nema 1100 milljónum króna á hvert þeirra og segir ráðið að þessi þungu viðurlög endurspegli m.a. ávinning félaganna af ólögmætu samráði þeirra sem varlega sé metið á að minnsta kosti 6,5 milljarða króna á því tímabili sem rannsókn samkeppnisyfirvalda náði til.

Við ákvörðun stjórnvaldssekta var einnig höfð hliðsjón af umfangi samráðsins, brotavilja olíufélaganna, þjóðhagslegt mikilvægi þeirrar vöru sem um sé að ræða og stöðu olíufélaganna á markaði fyrir fljótandi eldsneyti.

Vegna samstarfs við Samkeppnisstofnun í því skyni að upplýsa brot olíufélganna ákvað samkeppnisráð að lækka stjórnvaldssekt Olíufélagsins í 605 milljónir króna, og sekt Olís í 880 milljónir króna. Það er hins vegar mat samkeppnisráðs, að Skeljungur hafi ekki uppfyllt skilyrði til að njóta afsláttar.

Fram kemur í tilkynningu samkeppnisráðs að í höfuðdráttu hafi eftirfarandi falist í hinu samfellda samráði olíufélaganna:


Samráð um verðbreytingar á fljótandi eldsneyti, gasi, smurolíu og tengdum vörum.


Samráð um aðgerðir til að auka álagningu og bæta framlegð, þ.m.t. aðgerðir til að draga úr afslætti.


Samráð vegna útboða tiltekinna viðskiptavina.


Markaðsskipting og eftir atvikum verðsamráð vegna sölu til einstakra viðskiptavina, tiltekinna hópa viðskiptavina eða á einstökum landsvæðum.


Til að framkvæma þetta samráð hafi olíufélögin átt í tíðum og skipulögðum samskiptum sín á milli þar sem skiptst var á skoðunum og upplýsingum, athugasemdir og tillögur voru gerðar og ákvarðanir teknar. Stjórnendur olíufélaganna tóku þátt í fundahöldum, m.a. hittust forstjórar félaganna iðulega til að skipuleggja og taka ákvarðanir um atriði sem voru hluti af hinu ólöglega samráði. Þá var skipst á orðsendingum og upplýsingum sem vörðuðu samráðið í tölvupósti, símtölum eða símbréfum. Í samantekt, sem ekki sé tæmandi og birt sé í ákvörðun samkeppnisráðs, komi fram um 500 tilvik ólögmæts samráðs á því tímabili sem til rannsóknar hafi verið um verð og verðmyndum, um útboð og gerð tilboða og um markaðsskiptingu.