Nauðsynleg umræða í gangi… mjög svo. En það er eitt sem ég tók eftir þegar ég las í gegnum allar þessar mismálefnalegu ritsmíðar, er það að menn virðast ekki hafa hugmynd um hvert þessir peningar eru að fara, né hvernig þeir skiptast á milli tónlistarmannanna. Mér var eitt sinn sagt að STEF drægi tónlistarmenn í 3 dilka og að þessir 3 hópar fengju úthlutað úr hinum gríðarlega feita STEF gullpotti eftir því hver þeirra væri mikilvægastur. Þessir þrír hópar voru, ef ég man það rétt: Klassík,...