STEF málið svokallaða hefur varla farið framhjá nokkrum manni (nema stjórnmálamönnum sem þegja sem gröfin) og margir sem hafa séð viðtöl við Magnús Kjartansson formanns STEF.

Mér er vel minnisstætt þegar að hann líkti þessari hækkun við stöðumælagjöld og blés af sér öll mótmæli gegn þessu. Enda er þarna verið að færa tónlistarmönnum miljónir á miljónir ofan að gjöf.

Þarna gætti ákveðinnar þversagnar hjá honum. Fyrst gefur hann í skyn um að “greyið” tónlistarmennirnir þurfi nú að fá greitt fyrir sína “vinnu” og svo lætur hann í veðri vaka að þessir peningar séu nú engar stórar upphæðir.
Ég spyr bara: Fyrst tónlistarmönnum finnst þetta vera svona lítil upphæð…hversvegna þurfa þeir þá meiri pening? Þeir virðast eiga nóg af þeim til að eyða í gríðarlegar verðhækkanir.

Svo er það að sjálfsögðu hin klassíska fjöldamóðgun þeirra að þjófkenna alla sem nota skrifanlega geisladiska og skipa okkur í hóp verstu glæpamanna.

En ég skora enn og aftur á stjórnmálamenn að láta til sín heyra, því þessi rúmu 10.000 nöfn eru nöfn kjósenda (eða verðandi kjósenda) og þetta kemur til með að koma niður á næstu kosningum.

Ég lofa því í að minnsta að minna fólk á það þegar að kemur að þeim.

Lokaorðin að þessu sinni eru:

STEF stelur af okkur…ekki við af þeim!
JReykdal