Mér finnst náttúrulega fáranlegt að vera í stuttermabol í kulda og snjó, og þú gætir náttúrulega keypt þér ódýr jakkaföt, í hagkaup eða eitthvað. En afhverju viltu “alltaf” vera í jakkafötum?
Já, það er satt, þetta tengist því hvernig manni líður, eins og fólk sem þjáist af átröskun það borðar þegar því líður illa, þetta er alveg eins og með kaupæði og annað.
Það hefur komið fyrir mig, eins og ég hugsaði einu sinni að ég þyrfti að fara að hringja í vinkonu mína sem býr út á landi, svo bara allt í eini hringir hún í mig, svo líka fleira sem hefur gerst. en ég skil þig ekki alveg toolkit??
Þetta pokemon er bara fínt, sumir hérna segja að krakkar geri ekkert nema horfa á sjónvarp, en þau horfa ekki á pokemon þegar þau eru að leika sér og skipta á pokemon myndum
Ég myndi vilja eignast tvö eða þrjú, einu sinni ætlaði ég alltaf að eignast fjögur börn þegar ég var yngri, en fattaði að það yrði kannski soldið dýrt að sjá fyrir fjórum börnum. Það væri í lagi að eignast eitt barn, en ef maður á tvö geta þau leikið við hvort annað.
Mér finnst að það ætti að leyfa fóstureyðingar, það er bara mál kvennanna hvort þær vilja það eða ekki, ekki þingmanna sem setja lög um hvað er leyft og ekki.
Börn mega sko fara út eftir að útivistartíma er lokið með forráðamönnum, kannski er þetta bara einhver innsláttarvilla, það er mannlegt að gera mistök.
Þú áttir bara að móðga þau eða eitthvað ef þau eru að pirra þig eða segja eitthvað á móti, þá verða þau geðveikt fúl, en það er kannski illa en gert, en samt :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..