Eins og svo margir hafa tekið eftir eru krakka á aldrinum sex til níu ára farin að verða nokkuð pirrandi. Tökum sem dæmi ég á sex ára bróður sem er farinn að segja dónaleg orð á erlendri tungu sem ég hef aldrei heyrt. Þó ég tali ekki um bíómyndir eins og scary movie, meðalaldur áhorfenda á frumsýningu myndarinnar í keflavík var sex til tíu ára. Ríkið er að fara yfir um að leyfa svona lagað. Í umtalaðri mynd er fólk myrt, stundað óspart kynlíf og sora tungumál og krakkar líta á þetta sem sjálfsagðan hlut. Þetta gera krakkar sér til skemmtunar, horfa á myndir sem ættu að vera bannaðar með ríkislögum og leika sér með fokdýr ofbeldisleikföng. Þetta er fáránlegt. Þegar ég var ungur lék ég mér að kubbum og uppörvandi útileikjum en hjékk ekki inni í action man eða brjóta rúður og brúka munn. Þeir hafa engan áhuga á framtíðinni og gera aldrei heimalærdómin því þau eru í pókemon eða gera eitthvað af sér. Ríkið er líka að nota krakkana til að afla fjár. Tökum leikföng, þau hafa fokið upp úr öllu valdi og eru fokdýr eins og pókemon myndir sem kosta fleiri, fleiri hundruði króna á meðan körfuboltamyndirnar í gömlu dagana kostuðu hundraðkall eða svo. Ég ætlaði að kaupa gjöf handa bróður mínum og hann bað um action man og ég fór út í dótabúð og sá dúkkuna. Viti menn hún kostaði um fimmþúsundkall ein vesæl dúkka, ég meina það komm on. Ég hætti við ég meina það og keypti bíl í staðin. Ég sagði það áður og segi það enn ríkið er að heilaþvo börnin og við þurfum að vera fyrirmynd fyrir börnin en krakkar eru að reykja og drekka fyrir framan litlu krakkana, svo náttúrulega finnst þeim þetta flott og byrja sjálf. Framtíðin stefnir niður á við!!!!!!!
A