Úbbs. Stafsetning var aldrei mitt besta fag. Átti þá ekki að leyfa mér að fara í Kennaraháskólann, eða hvað? Ég hef hins vegar tekið mig mikið á í stafsetningu og geri mitt allra, allra besta í því eins og öllu öðru, sem ég tek mér fyrir hendur, og ég verð að segja að miðað við það sem ég sé skrifað, ekki einungis á Huga, heldur líka á visi.is og á mbl.is að þá sé ég nú ekki versti greinahöfundur sem á land vort hefur stigið.