Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

eyr
eyr Notandi síðan fyrir 22 árum, 9 mánuðum 12 stig

Re: Þroskaskeið hundsins

í Hundar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
flott grein gott að fá eitthvað svona inn á netið áttu ekki fleiri svona gullmola og fræðslu atferlisfræði hunds t.d eða eitthvað fleira áhugavert

Re: Steinefnasteinn

í Hestar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
afsakaðu ef ég hef móðgað þig !!! vissi ekki að hvaða jón sem er mætti fara með sýni að keldum til að láta mæla sýni þar.

Re: Smá hugleiðing fyrrverandi hestamanns.

í Hestar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
varstu ekki að tala um að þú ættir börn geturu ekki komið þeim í þetta sport líka oft smitast þetta svona smám saman einn byrjar og áður en varir er öll fjölskyldan komin á kaf í þetta.

Re: Sniðugir hlutir til að kenna hestinum

í Hestar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
mér finnst mjög sniðugt að kenna hestinum að koma til þín þegar þú flautar eða kallar á hann. mínir eru í hagabeit í 300 hektara hólfi með 50 öðrum hestum ég fer upp á hól þar sem að ég sé til þeirra og kalla og þeir koma til mín. þannig ég þarf ekki að fara í þessa löngu skemmtilegu göngutúra að hlaupa umm allt eftir þeim. mjög hentug þegar þeir eru í svona stóru hólfi.

Re: Landsmótshald

í Hestar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
ég er sammála því að hafa þetta á tveimur stöðum til að geta haft mótin glæsilegri, minni viðhald og þar af leiðandi kostnaður. ég bjó rétt við viðidalinn þegar landsmótið var haldið þar og eina orðið sem að ég átti fyrir það mót var pirrandi pirrandi og pirrandi, missti bílastæðið mitt undir gesti gat ekki sofið heima fyrir gjallarhávaða og engin svona “úti að sofa í tjaldi” þegar maður kommst svo loksins á mótið

Re: Sniðug brögð til að kenna hestinum

í Hestar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
kenndi elsta hestinum mínum svona hljóðmerki og hinir yngir kunna sumt af þessu. rosalega þægilegt þurfa ekki alltaf að vera í taumunum á hestunum

Re: Steinefnasteinn

í Hestar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
hvernig veit maður hvort að það er lágt eggjahvítuefni í heyinu ??? ekki eins og þeir sem eru að selja heyið séu með vottorð

Re: Smá hugleiðing fyrrverandi hestamanns.

í Hestar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
vonandi getur´þú farið að sinna hestunum aftur gangi þér vel með það. segi nú bara eins og hefur komið hér fram maðurinn þarf ekkert endilega að hafa áhuga á þínu áhugamáli, á hann ekkert áhugamál sem að þér finnst ekki skemmtilegt og hann sinnir samt. allir hafa gott að því að komast út úr húsi að gera eitthvað sem að ÞEIM finnst skemmtilegt. byrjaðu á einum og sjáðu svo til gangi þér vel

Re: Gleymið Írak, aðal stríðið er heima hjá mér!

í Hundar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
jamm er að lenda í þessu með mína borðar ekki þurrmatinn sinn og varla þegar maður bætir út á hann einhverju öðru reynir þá að plokka það í burtu og borða það eingöngu. endilega gefið ráð til að láta þá fara að borða mér finnst hún svo grönn.

Re: Golden Retriever

í Hundar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
er ekki alveg að fatta þetta með að þeir séu æstir ég á eina stelpu að vísu bara hvolp enþá og hún er mjög þæg innan dyra. nátturulega leikur í henni en ekkert spes æst !!! spr hvort að þessi hundur sem var svona æstur hafi eitthvað verið að honum, eða ekki fengið nógu mikla athygli og hreyfingu. eins með dýrir í rekstri eitthvað dýrari en aðrar tegundir sem eru jafn stórar ??? vonandi geturu sannfært foreldra þína um að fá svona vin baráttukveðju

Re: matur

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
jamm og jæja ég hef nú alltaf verið hrædd að gefa hundi eggjarauðu. sistir min átti hund sem að fékk harðlífi og dýralæknirinn sagði henni að gefa honum eggjarauðu, rjóma og sykur blandað saman til að losa um stífluna og viti menn stíflan losnaði með miklum látum : ) þau rétt komust út um nóttina með hundinn áður en frussið kom !!!

Re: Hver ræður, ég eða hundurinn ?

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
ég reyni að lifa eftir þessu að við séum foringjar , borðum fyrst , förum fyrst út um dyrnar og svo frv. það komu gestir til okkar í gær heim og viti menn þeir sögðu hæ við okkur og svo fékk hundurinn alla athyglina áður en við náðum að stoppa þau eða hana allt komið á fullt í samræðum við hundinn. ; ) maður gerir það sem maður getur takk fyrir góða grein

Re: matur

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
gaf henni lýsi í gær bara hálfa teskeið hún át eins og hestur, greinilega mikið betra en matarolía þetta var bara findið að sjá þetta kláraði matinn sinn í hvelli og horfði svo á mig “ hva ekkert meira að borða ” ??? ekkert smávegis góð viðbrögð enda er lýsi gott ; )

Re: matur

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
er að gefa henni nutrience frá fiskó í smáralind hvolpafóður er að skifta yfir hún var á öðru sem var ekki eins feitt hef verið að gefa henni olíu á kornið svona 1-2 í viku en þá vilja hægðirnar verða í mjúkara lægi kannski er ég bara að flýta mér of mikið vill að þetta gerist hraðar það að setja olíu á matin hennar á að ´hjálpa til með að feldurinn verði meira glansandi finnst hann heldur mattur. ég sem sagt á að gefa henni svona 20 mín til að klára matinn og taka dolluna svo frá henni

Re: Hver ræður, ég eða hundurinn ?

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
takk fyrir rosalega góða grein Við fengum hundin okkar 6 mánaða gamla hún hliddi strax mikið meira karlinum en mér greinilega hann var húsbóndinn. ég fór á netið og fann svona svipaða grein, alpha leader heitir eitthvað svoleiðis þar var einmitt verið að tala um þetta ekki gefa hundinum fyrr en þu ert búin að borða fara alltaf fyrstur inn og út úr húsi og aldei leifa honum að sofa hjá þér í rúmmminu alla veganna hafa hann þá til fóta, mjög svipuð þessari grein ég fór að umgangast hundin...

Re: ungabörn og hundar ...

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
nei það er satt við búum ekki saman en við erum mikið saman ég að passa fyrir hana og svo öfugt ef ég þarf að skreppa á hvöldin þá passar hún hundinn. púff takk gott að vita þetta

Re: ungabörn og hundar ...

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
ein spurning sistir min á 10 mánaða strák ég á 8 mánaðatík þeim hefur alltaf likað mjög vel hvert við annað (virðast hafa svipuð áhugamál blóm steinar ; ) borða þetta ) við erum samt alltaf með varan á við þau saman maður veit aldrei hún er rosalega passasöm með hann, fylgist vel með honum og passar að allt sé í lagi með hann (við erum reyndar alltaf líka nálægt) á maður sem sagt að halda henni frá honum ??? miðað við það sem að ásta segi

Re: Hestur eða meri?

í Hestar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
það er ekkert vitlaust að láta skoða hrossinn þegar þú tekur þá inn í hús á veturnar. Láta skaufahreinsa hestana og gefa öllum orma og lúsalyf. Einnig skoða upp í þá athuga hvort að það sé nokkuð gaddur upp í þeim. Svo áður en þú sleppir þeim á vorin er gott að gefa þeim aftur ormalyf sérstaklega ef að þeir fara að ganga úti á litlu landsvæði. annars fylgistu bara með þeim og ef eitthvað er að kalla þá nátturulega til dýralæknir.

Re: Hvaleyrarvatn

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Takk fyrir góða grein. Því miður þá ert þú ekkert einn í þessu máli, þetta virðist vera út um allt stór Reykjavíkursvæðið ekkert landsvæði frátekið fyrir hunda. Ég bý t.d í Mosfellsbæ þar er að vísu samkvæmt korti frátekið svæði nálægt einum skólanum hundaland og ég rosalega ánægð fór á staðinn til að skoða með hundinn minn og viti menn allt afgirt með rafmagnsgirðingu fyrir hesta ; )en þar sem að ég er nú hestamaður líka þá var ég ekkert að láta þetta trufla mig. Var að lesa á hundavef...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok