Já, það er alveg nauðsynlegt að gera hrossið fyrst þjált og meðfærilegt inni í gerði EÐA reiðhöll, það er ekkert vit í að æða með hest út úr gerðinu fyrr en þú veist hvernig hann hugsar (eða þannig…). En ég held að það sé að verða ansi algengt sumsstaðar að hestunum er riðið ALLT OF LENGI í gerði, Benni Líndal segir á spólunni sinni að hann vilji ekki vinna of lengi með hestana inni- þeir temjast best í guðsgrænni náttúrunni , eru þá í sínu eðlilega umhverfi. Alla vega tem ég ekki hestinn...