ég var vitni af ljótum hlut í dag…hef nú séð það verri! en það fær mann til að hugsa hvað það eru til mikið af fólki sem fer illa með dýrin og veit ekkert hvað það er að gera!!!!
ég var upp í hesthúsi í dag og maður nokkrum hesthúsum frá var að reyna að lónsera hestinn sinn í gerðinu! hann var með langan lónserínga taum en notaði helmingin til þess að berja hestinn sveifla því eins og kúreki i hann, reyna að koma greyinu áfram sem hljóp nokkra litla hringi..svo rikti maðurinn í hestinn aftur og aftur af því að honum fannst hesturinn ekki vera að gera rétt..ekki eins og greyið hafi haft eitthvað pláss til að reyna að hlaupa í hringi..inn á milli togaði maðurinn þó hestinn til sín og klappaði honum..ég efastum að hann hafi ætlað vera eitthvað vondur við hestinn, en hann var augljóslega ekki að fara rétt að þjálfuninni.! Honum hefði verið nær að fara bara í hringgerði til að leyfa hestinum að átta sig á hvað hann á að gera í staðin fyrir að rikkja í hann og berja þegar hann gerði ekki það sem maðurinn ætlaðist af honum!!!!