Djöfulsins veður! Ég hef ekkert komist á hestbak að viti allan vetur. Þetta er skelfilegt. Ég er í Fáki. Núna sit ég heima við og ákveð að fara ekki á hestbak. Af hverju? -það er tíu stiga frost.

Getum við ekkert gert í þessu, nei það getum við ekki gert. Við verðum að húka heima og loks þegar gott veður kemur verða hrossin full af eldmóði að hlaupa með okkur Fáksmenn út um allt. En hvað með höllina okkar? Getum við verið þar?

Ég er brjálaður út í stjórnarmenn Reykjavíkur og Fáks. Hvað getum við gert?