Þetta er kannski ekki beint efni í heila grein, en ég er að vona að ég fái meiri viðbrögð ef þetta er grein en korkur.

Hefur einhver hérna prófað aðra hesta en íslenska ?
Ég er svo forvitin um samanburðinn, hvernig hestur var þetta, hvernig var hann í skapinu .. var hann hastur?
Og bara já .. segja frá ef þið hafið prófað eitthvað annað en stoltið okkar :)

Ég held að ég myndi reyndar aldrei þorað á bak á neinu stærra en íslenskann hest, ég hef séð td lögguhestana í London og þeir eru tröllvaxnir, ég hreinlega skil ekki hvernig fólkið kemst á bak þeim yfir höfuð :)

Endilega sendið inn reynslusögu ef þið hafið hana, ég er svo forvitin um þetta.

Zallý
———————————————–