Jæja þetta áhugamál hefur dáldið verið í lægð síðustu daga svo ég ákvað að skella inn smá svona grein sem ég voni að vekji smá umræðu og blási lífi í þetta ;-)

Ég var að skoða grein inn á hundum þar sem var verið að pæla í hundanöfnum. Og datt í hug að það gæti verið sniðugt ef allir myndu segja hvað hestarnir þeirra heita og af hverju þeir heita það.

Einnig væri gaman að vita hvenær þið fengið hestaáhugann og af hverju. Hvað þið hafið átt marga hesta og hvað þið voruð gömul þegar þið byrjuðuð í hestamennskunni og hvenær þið fenguð fyrsta hestinn ykkar. Hvar hestarnir ykkar eru yfir árið, hvernig þeir eru á litinn….

og svo framvegis og framvegis og framvegis.

Kveðja.
Kisustelpan