Ég kíki reglulega
inn á kaffihús hugans
og fæ mér bolla
af heitum og koffeinríkum
innblæstri

Sit þar svo
mislengi

Eftir góða stund
blæs ég orðunum frá mér
drep í pennanum
á hvítum öskubakka
og geri upp