Í huga mínum
felurðu þig

drauminn
sem mig hefur ekki dreymt

hulinn þoku
eftirvæntingar

og ég bíð eftir þér



Mesti ótti minn
er að vakna

og sjá þig
þar enn

hulinn þoku
eftirsjár

drauminn sem mig dreymdi aldrei