Nóttin kom til mín,
svört og fögur,
með freistingablik stjarnanna
sem soguðust inn í svarthol augna hennar
og í hungangssætri lyktinni
grétum við saman
svitatárum.

Sitt hvort tungumálið,
en þessa nótt skildum við bæði
aftur og aftur

og svo aldrei aftur.