Ætli það sé hægt
að lifa í friði og ró
nálægt svartholi?

Ætli það sé hægt
að flytja yl og birtu
inn í svarthol
án þess að það tapist?

Ætli það sé hægt
að fylla upp í svarthol?

Þeir segja að það sé ekki hægt

Hvernig get ég verið ósammála þeim,
bara vegna þess að ég upplifði þetta sjálfur?