Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hvort er Guð karl eða kona...?

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég reiði mig á kenningu Matt Stone og Trey Parker, aldrei hafa þeir brugðist mér.

Re: Monty Python áhugamál?

í Hugi fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Það var nú lítið ;)

Re: Monty Python áhugamál?

í Hugi fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Svona að því gefnu að þetta sé ekki kaldhæðni, þá - jú, hópurinn nefndi sig einmitt eftir viðkomandi.

Re: Monty Python áhugamál?

í Hugi fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Monty Python var líka eini þekkti breski flugmaðurinn í fyrri heimsstyrjöld sem náði aðeins að skjóta niður vinahermenn. Mig gæti misminnt aðeins um eitt eða tvö atriði.

Re: Here i am

í Hugi fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Reyndar skrifaði hún meira að segja I vitlaust - með litlum staf þ.e.a.s. Ég held samt að mér hafi tekist að lesa eitthvað úr þessu.

Re: ég hata

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég hata fólk sem segir "í staðin fyrir" og notar enga hástafi…

Re: Coca Cola vs. Pepsi

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hann sagði ekki að Pepsi væri goslaust Coca-Cola, hann sagði að Pepsi væri eins og goslaust Coca-Cola. Þar fyrir utan er Kolsýra uppleyst í vökva(vatni) ekki bragðlaus heldur súr => kolsýra.

Re: Blandaðu saman Axel F og pirrandi hljóði og þú færð þetta

í Háhraði fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Jú, við erum nefnilega ekki svo ólík, froskarnir og við.

Re: Fyrsta vefsíða?

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Fjandinn hvað internetið er nýtt maður, ég gerði mér ekki grein fyrir þessu. Engin þessara síðna >10 ára.

Re: er +a móti að sprengja tunglið

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ef þú trúir þessu frá kennaranum þínum má ég það. Svo kallaði ég þig ekki fífl - hvort það var ekki hálfviti…

Re: er +a móti að sprengja tunglið

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þú ert annað hvort að djóka eða þú ert fáviti, ég ætla að gera ráð fyrir því síðarnefnda í svarinu. Ég veit ekki hvort ég þarf að taka það fram en þú hefur augljóslega ekki fylgst nógu vel með í eðlisfræðinni. Þetta er tómt kjaftæði sem þú ert að segja. Það hefur greinilega einhverjum tekist að fífla þig um að það væri verið að fara að sprengja tunglið - sem er nær ómögulegt verkefni og þar fyrir utan engin ástæða til.

Re: er +a móti að sprengja tunglið

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Snúast milli 0° og 90°? Hvað í ósköpunum meinarðu? Meinarðu að öxulhallinn mundi breytast í sífellu eða að jörðin mundi bara dingla stöðugt fram og til baka um níutíu gráður? Ég sé ekki að tunglið hafi svo mikil áhrif á snúning jarðar um sjálfa sig. Það hefur aðallega áhrif á sveiflu jarðar í sporbraut um sólu og svo sjávarföllin. Reyndar hefur fjarlægð tungls frá jörðu þau áhrif að eftir því sem tunglið er lengra frá jörðu er það lengur að fara hringinn þar sem það togar jörðina með sér og...

Re: VR miði?!?!?!?!?

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þú ert í ruglinu maður. Miðasalan á því byrjaði fyrir löngu síðan. Lööööngu síðan. Ég held samt að það séu 100-300 miðar eftir. Allavega stóð það í Fréttablaðinu fyrir nokkrum dögum að það væru 300 miðar eftir. Er það ekki Skífan?

Re: Smálest

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Prófaðu að fletta öðru hvoru upp í orðabók, þá gætirðu skilið hvers vegna fólk er að stríða þér ;)

Re: Gísli Marteinn strax byrjaður að meika það

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Og ég veit að Ísland er nær 290þús manna en 250 ef einhverjum snillingi dytti í hug að setja út á það hjá mér.

Re: Gísli Marteinn strax byrjaður að meika það

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það minnir mig svolítið mikið á viðlagið í laginu Money Talks með AC/DC. (“Come on, come on, lovin' for the money…”) Annars finnst mér Gísli Marteinn alveg fáránlegur þarna. Hann setur út á grannasambönd í stigagjöf hvers einasta lands. Er það þá sanngjarnt að 250þús manna þjóð gefi alltaf Noregi og Danmörku 10 og 12 stig? Maðurinn er greinilega bitur…

Re: GOGGLE WHACK!!!!!!!!!!!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég er ansi hræddur um að það sé rétt hjá þér. Það er reyndar skrifað negligible.

Re: :@

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Kannski hefðum við ekkert endilega lent neitt ofar - en fjandinn, þá vil ég frekar að við hröpum með stæl.

Re: GRRRRRR..

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Mér finnst líklegast að þetta sé gælunafn. Raunverulegt nafn gæti þá verið eitthvað eins og Steinunn, Þórunn eða kannski bara Unnur.

Re: Antisportistar

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Haha, þröngsýnisviðhorf sportistans.

Re: Hvers vegna clasísk tónlist sökkar.

í Músík almennt fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hvaða fáviti hleypti umsókn þessa um málfrelsi í gegn?

Re: Spurning sem viðkemur samræmdu prófunum

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það er reyndar ekki alveg rétt - þú þarft að ná minnst 5 á fjórum prófum, ensku, íslensku, stærðfræði og einu í viðbót til þess að komast á stúdentsnámsbraut. Neðar en það telst í rauninni fall - þó að það megi svo bæta það upp með núlláfanga. Hitt er svo annað mál hvort að skólarnir framfylgja þessu.

Re: Schnabbi das kleine Krokodil

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Nei, hver fjandinn, ég dró versló inn í þetta. Jæja, það var líka létt spaug hjá mér.

Re: Schnabbi das kleine Krokodil

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Taktu þetta ekki svona nærri þér. Í fyrsta lagi heyrði ég raunverulega þetta lag í þýskutíma hjá mér, í öðru lagi varst þú að draga verslinga inn í þetta og í þriðja lagi var þetta bara létt spaug hjá mér með hnakkana, ég er svo sannarlega ekki að missa mig í einu eða neinu. Ég veit alveg að steríótýpan á hvergi við alla í neinum hóp, sjálfur þekki ég auðvitað nokkra verslinga og þetta eru nú flest indælisgrey. Ég hef engan áhuga á að skrifa pistil um eina eða aðra steríótýpu, hvort sem er...

Re: Hjálp....ég þarfnast einhvers....

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Er þetta örugglega PAL og fyrir rétt svæði? Gætir lent í vandræðum ef diskurinn er stilltur fyrir annað svæði.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok