ég held að þessar stelpur(ungu 8.bekkjarstelpurnar) séu ekki að gera einhverja uppreisn gegn foreldrum sínum með því að ganga í g-streng.. og mér finnst það rangt að líkja þessu við anarkistana sem steptu hnefa sínum gegn yfirvaldinu. ég held að þessar stelpur séu að ganga í þessu af því að, eins og þú sagðir, þær eru komnar á kynþroskaaldurinn og séu að reyna að vera sexý og flottar, plús það að þetta er í tísku og því miður eru svo alltof margir sem fylgja bara straumnum í blindni sinni...