Ég tel mig hafa svarað flestum spurningum og ég skora á fólk að nefna einhvern galla í kenningunni hér og einhverja ástæðu af hverju þetta er ekki pottþétt og hér kemur kenning mín um alheiminn:

Ég trúi ekki á enda alheims vegna þess ekkert endar án þess að annað byrji í einu eða öðru formi og ekkert er ofmetið hugtak því að ekkert er ekkert og tekur ekkert pláss. Það kemur ekkert út úr því að hugsa um ekkert sem eitthvað svar og nei það eru ekki veggir á endum alheimsins. Svo að ég er nokkuð viss um að alheimurinn er endalaus. Það er eitthvað alls staðar þar sem menn hafa leitað í geimnum svo að ég tel mér trú um að það sé til endalaust af efni og orku í þessum endalausa heimi. Ég er viss um að það sé endalaus tími því það getur ekki allt bara hætt. Allt verður að enhverju, endalaust pláss + endalaust efni + endalaus orka + endalaus tími = endalausir möguleikar. Það getur ekki staðist öðruvísi. Komið nú með ykkar andmæli. Þið skuluð hafa einhver rök til að styðja ykkur við. Ég hlusta ekki á fólk sem segir að það séu veggir sem guð skapaði eða að einn daginn komi ragnarök.
afsakið stafsetningar villurnar ég er blindur