Leðjan til Lettlands!!!!! Hæ öllsömul!!!

Mig langaði bara til að vekja athygli á snilldarhljómsveitinni Botnleðju í júróvisjón á morgun(laugardagskvöld). Þeir drengirnir eru bjartasta von Íslands til frama í mörg ár. Það löngu kominn tími til að einhverjir eins og botnleðja komi og hristi aðeins upp í þessari keppni sem er búin að vera stöðnuð í mörg ár. Með fullri virðingu fyrir fólki eins og hreimi og Birgittu haukdal(en engin virðing fyrir þeim lögum sem þau flytja) þá er það búið að sanna sig að þessi sama júróvisjón formúla gengur ekki upp. Þess vegna segi ég leðjan til lettlands!!!!!

p.s. ég veit að þetta hljómaði eins og kosningaræða.