Mjög fáar plötur eru þess virði að kaupa þær. Íslenskar plötur ættu allir að kaupa (styrkja popparagreyin) en útlendar, nei nei. Það er hvort sem er minnst til að þessu. Með adsl tengingu sækirðu plötu á korteri. Í gær brenndi ég nokkra diska í heilu lagi, prentaði umslagið og renndi þessu í gegn: The Streets, The Walkmen, Bobby Conn, The Hives, Capitol K og For Stars - stöff sem ég hef lesið um að væri þess virði að tékka á. Ef ég hefði þurft að kaupa þetta í búð hefði það kostað mig 15.000...