ég veiði án þess að nota öngul sagði elliæri einsetumaðurinn
þannig kemst ég hjá því að þurfa að velja á milli technicolor og mónókróm

þannig myndast skörp skil á milli x í núllta og x í xta

hrotur einsetumannsins skera mig eins og öskur barnsviptrar móður

ég hugsa
um tjörnina og frelsið
hið fagra og vonda
um ljósárann á milli okkar
mín og mín