Bara nokkuð sem mér datt í hug við að lesa um Sádi Arabíu

En það er sjálfsagt ekkert það afl í heiminum sem hefur drepið jafn marga og kapólska kirkjan.
Sjáið krossferðirnar, voru þær ekki farnar í nafni trúarinnar?

Spænski Rannsóknarrétturinn þar var kristin kirkja að stráfella sitt eigið fólk, hverjir fengu óspjallaðar meyjar fyrir það.

Þið talið um að Osama Bin Laden sé múslimi og þessvegna séu allir múslimar vondir.
Hverrar trúar var Adolf Hitler, hann drap 4 miljónir
Hverrar trúar var Stalín, hann drap 6 miljónir.

Hverrar trúar voru Evrópsku nýlendu þjóðirnar sem fóru til Afríku, Eyjaálfu, Suður og Norður Ameríku og stráfelldu þar fólk fyrir villutrú og rændu það landinu, auðævum, ærunni og lífinu.
Gerðu meira að segja gott betur og tóku “heiðingja” og seldu þá í þrældóm og er þetta fólk enn að súpa seyðið af þeim gjörðum í dag.

Eitt auðugasta landsvæði veraldar Bandaríkin, því rændu þessir menn, og hvernig afsökuðu þeir það, jú það voru villitrúar menn sem voru þar fyrir og þeir eru ekki fólk.

Ég skal segja ykkur hverrar trúar þetta fólk var.
Það var alltsaman KRISTIÐ, reynið nú að leggja saman í huganum líf hversu margra kristin kirkja hefur á samviskunni.