Við hliðið
stendur eineygður hrafn
og horfir á þig

það liggur snjóföl
á milli leiðanna
í garðinum

mölin
eins og að þú gangir
á þúsund beinagrindum

legsteinarnir
eins og fingurgómar
einhvers sem grafinn er í garðinum

teygja sig
í átt til
dökkleits himins

einmana tré
stendur nakið
í garðinum miðjum

hrafninn
lítur af þér
og flýgur í burtu