model.is býður upp á ljósmyndatöku, að mínu mati, á frekar dýru verði sem hljóðar svo; “Í tilefni sumarsins gefst áhugasömum tækifæri á að fara í tísku-myndatöku á mjög góðu verði, myndatakan kostar 20.000-kr (almennt verð 30 þús) og eru innifaldnar 20-30 myndir á CD.” Og þó að þetta eigi að vera “tilboð” vil ég bara ekki trúa að þetta sé svona dýrt í raun. Allavega ekki miðað við hvað efni, vinna, framleiðsla og fl. myndi kosta.