Ég veit að mörg ykkar eiga dýr og það er það besta í heimi…….. mig langaði bara að segja hvað það var erfitt fyrir mig að eignast kött.Pabbi neitaði alltaf þegar ég spurði en svo fórum ég og mamma í heimsókn til vinkonu hennar sem að átti kött sem var nýbúin að eignast kettlinga. Pabba brá nú ekkert smá þegar við birtumst með lítinn kettling en þegar ég var búin að grátbiðja hann þá lét hann undan. Nú eru hann og Mylla (kisan mín)bestu vinir. Mylla er svakalega fjörug en hún er líka algjör kelirófa á hverjum degi baðar hún mig (með því að sleikja mig)þetta gerir hún bara við mig ,engan annan og fólk hefur komist að þeirri niðurstöðu að hún haldi að ég sé kettlingurinn hennar. Það eina sem að ég hef að segja er að allir eigi að eiga dýr því að með því að hafa svona skepnu á heimilinu verður allt mikið bjartara og lífið fær meiri tilgang :)

Eru ekki allir sammála mér ;) ???
Þú getur fengið