Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

doppan
doppan Notandi frá fornöld 39 ára kvenmaður
130 stig

Fyrirsætunámskeið: Rugl? Snilld? (39 álit)

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Sá hér á korkinum að stelpa nokkur var að spyrja um verð á “Framkomu og fyrirsætunámskeiðum” hjá Eskimo. Pælið í þessu. Af öllum þeim fjölda stelpna sem sækja “Framkomu og fyrirsætunámskeið” hjá Eskimo, hvað ætli mikið brot, prósenta jafnvel, hafi eitthvað virkilega uppúr þessu peningalega séð? Sem sagt, fái fyrirsætusamning, hlutverk í sjónvarpsauglýsingu, ljósmyndaseríu í tískublaði o.s.frv. Ég ætla að skjóta á… ekki svo ýkja há. En auðvitað er aldrei hægt að alhæfa neitt svona. Auðvitað...

Persónurnar í stafrófinu (7 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þykir mér hvimleiðinlegt þegar fólk skýrir persónur í greinum sínum eftir bókstöfum. Dæmi; Málið er þannig að ég var með strák sem við skulum kalla A en svo hitti ég annan sem við skulum kalla B, ég sagði A upp og byrjaði að deita B. Svo byrjaði skyndilega fyrrverandi kærasti, sem við skulum kalla C að senda mér sms en á þessu tímabili var ég ekki ennþá alveg komin yfir A o.s.frv….. Fyrr en varir er þetta allt komið í eina kássu þegar líður á lestur í greininni. Ég veit ekki með aðra en ég...

Billie Holiday (13 álit)

í Jazz og blús fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Billie Holiday, 1915-1959 Líf Billie Holiday er mörgum ráðgáta en eitt er víst að það var vissulega erfitt. Til dæmis er vitað að hún var á stofnun vegna þess að hún var fórnarlamb nauðgunar í æsku og hún varð vændiskona á sínum yngri unglingsárum. Það var röddinn sem bjargaði henni frá þessu vesæla lífi. Eftir að hafa hljóðritað nokkra tóna með Benny Goodman árið 1933, áttaði Billie sig á því að hún gat forðast vændið með því að syngja, jafnvel þótt það að syngja hræddi hana örlítið. Það er...

Þetta reddast (9 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Jæja, þetta mun einungis koma svona “top of my head” ..engin undirbúningur eða hugsun á bakvið þessa grein, bara hrein pæling. Hversu oft hef ég séð greinar eftir stelpur sem eru þá að aumka sér yfir 1) kærustum 2) fyrrverandi kærustum 3) kærustum sem koma illa fram við þær og etc. etc. En svo þegar mar sér greinar frá gaurum sem tala á þessum nótum hljóma þær yfirleitt einhvernveginn þannig að þeim finnist stelpur vera illkvittnar og að allar stelpur vilji bara vera vinkonur þeirra. Þetta...

Elísabet I (10 álit)

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Langaði að segja frá henni í grófum dráttum. Og sömuleiðis vildi ég líka fá smá tilbreytingu frá þessum venjulegu stjörnum sem maður veit nú þegar alveg nóg um og er alltaf að sjá sömu upplýsingarnar aftur og aftur. Það vita eflaust einhverjir eitthvað um þessa sniðugu konu, persóna hennar hefur m.a. komið fram í kvikmyndunum Shakespeare In Love og Elizabeth. Og er þá klæðaburður hennar einkar eftirminnilegur. Snillingur í stjórnarháttum og tísku. Elísabet I (1558-1603) beitti mikilli...

Miss Universe 2003 (30 álit)

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Fegurðarsamkeppnir hafa mikið verið í umræðunni hér á huga og almennt í fjölmiðlum undanfarið. Ég var stödd í Köben í síðustu viku og kveikti á sjónvarpinu á laugardagskveldi. Í kassanum var Miss Universe 2003. Ég hef í raun alltaf haft gaman af því að horfa á svona keppnir og ekki haft neitt sérstaklega útá þær að setja. En núna breyttist það eitthvað, ekki þó einungis útaf þeirri grunnhyggju sem þessar keppnir byggjast á heldur hvernig fyrirkomulagið í keppninni var. Keppnin var haldin Í...

Illskunar kærasti ? (27 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég er nýlega hætt með strák sem ég var með í rúmt 1 ár. Ástæðan að við hættum saman; ég veit það ekki? Mér gremst það og finnst hann koma svo illa fram við mig. Allt gekk frekar vel fyrst um sinn og við náðum vel saman og mér leið virkilega vel. Svo veit ég ekki hvað það er sem verður til þess allra fyrst að allt fer að halla hægt og sígandi. Og þar af leiðandi koma upp leiðinda atvik. Við tökum okkur hlé um haustið og náum að sættast? Get heldur ekki svarað hvernig við gerðum það? Það bara...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok