Persónulega trúi ég ekki á guð en ég hef samt spáð mikið í þetta. Mér finnst ekkert að því að fólk trúi á eitthvað, hvað sem það er, svo lengi sem það er ekki að reyna að troða mér inn í ljósið líka. Ég efast ekki um að mörgum finnist gott að geta trúað á eitthvað æðra afl, en mér finnst ég einfaldlega ekki þurfa á því að halda. Ekki að ég sé eitthvað rosalega hrokafull, það er bara ekki eitthvað sem ég hef áhuga á. En það er í raun ekkert hægt að vita hvort hann er til eða ekki, ég mun...